Langisjór

 

   Hús og veiðileyfi í Langasjó!

     Eina húsið við Langasjó og friðsældin er yndisleg!

    The only house on Langisjór lake and tranquility is wonderful!

  

 

    Þetta hús sem stendur á nesi syðst við Langasjó er til leigu.
 Svefnpokapláss er fyrir 4 í kojum og 2 á tvíbreiðum svefnsófa.

 Rennandi vatn og WC er í húsinu.
 Innifalið í leigu eru veiðileyfi í Langasjó. 
 Sjá verðskrá.

 

  Langisjór: House which stands on a peninsula south to the Langisjór lake for rent.
Sleeping bag accommodation for 4 in beds and 2 on double sofa bed. Running water and toilets in the house.
Included in the rent are permit for fishing within Langisjór lake.

 

 Fleiri myndir:

 https://picasaweb.google.com/115285659137445880786/Langisjor?authuser=0&feat=directlink

  Langisjór og Sveinstindur.

 langisjr_er_27_km_640

  Langisjór er stórt stöðuvatn suðvestan við Vatnajökul. Hann er 27 ferkm. að flatarmáli, 20 km langur og 2 km á breidd þar sem hann er breiðastur. Hæð yfir sjávarmál er 662 m. og teygir hann sig suðvestur frá jöklinum. Austan Langasjávar liggur fjallgarður sem heitir Fögrufjöll, frá þeim ganga víða klettahöfðar fram í vatnið, og inn í þau skerast firðir og víkur. Við suðurendan er Sveinstindur kenndur við Svein Pálsson lækni og náttúrufræðing í Vík. Sveinstindur er 1092 m. á hæð yfir sjávarmál. Uppganga á hann er tiltölulega auðveld og á flestra færi, hækkun um 400m.

  Af tindinum er einstakt útsýni, í góðu skyggni er sagt að sjáist yfir fjórðung Íslands, frá Öræfajökli í austri allt til Hellisheiðar, Langjökuls og Hofsjökuls í vestri. Þegar horft er yfir endilangan Langasjó til Vatnajökuls, er útsýnið óviðjafnanlegt. Á hægri hönd er horft yfir Fögrufjöll með fjölda lóna milli hæða og tinda. Austan Fögrufjalla rennur hin ólgandi jökulá, Skaftá, sem oft ryðst fram með feiknarlegum jökulhlaupum, en þau eiga upptök sín í Skaftárkötlum, sem eru skammt inni á Vatnajökli. Austan Skaftár sést yfir til Lakagíga, þaðan sem Skaftáreldhraun rann fram á láglendið árið 1783, en það er þriðja stærsta hraun sem runnið hefur á jörðinni frá síðustu ísöld.

  Vinsælt er að fara í kajak ferðir á Langasjó og veiði er í honum.

Mynd augnabliksins

Fyrirspurnir / Bókanir

Heimsóknir

Í dag: 2
Samtals: 13728

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning